Stórskemmtilegri Hjóna- og parakeppni Icelandair og GA lokið

Lokahóf Hjóna- og parakeppni Icelandair og GA var haldið á laugardagskvöldið síðastliðið og heppnaðist það einstaklega vel og það sama má segja um mótið allt þrátt fyrir misskemmtilega veðurspá. 200 keppendur voru mættir til leiks með það að markmiði að njóta þess að spila golf í góðum félagsskap og auðvitað reyna sitt til að vinna mótið og var gríðarleg spenna í keppninni og fór það svo að það voru þau Bent Larsen Fróðason og Líney Sigurlaug Kristinsdóttir sigruðu mótið á samtals 18 höggum undir pari! Stórglæsilegt golf hjá þeim hjónum sem spiluðu virkilega gott golf báða dagana. 

Við hjá Golfklúbbi Akureyrar viljum þakka keppendum kærlega fyrir þátttökuna og viljum einnig þakka Icelandair fyrir frábært samstarf í kringum mótið en við hlökkum strax mikið til næsta árs.

Hér má sjá alla verðlaunahafa í mótinu:
Föstudagur -
4. hola: Lárentsínus H Ágústsson 378cm
8. hola: Stefán Bjarni Gunnlaugsson 197cm
11. hola: Viðar Valdimarsson 45cm
14. hola: Gísli B Úlfarsson 316cm
18. hola: Hildur Nielsen 126cm
10. hola í tveimur höggum: Sigurður Sigurðsson 85cm

Laugardagur -
4. hola: Sólveig Erlendsdóttir 197cm
8. hola: Halla Berglind Arnarsdóttir 363cm
11. hola: Ragnar Guðgeirsson 303cm
14. hola: Viðar Valdimarsson 324cm
18. hola: Karín Herta 82cm
Lengsta drive karlar: Ingunn Guðmundsdóttir
Lengsta drive konur: Rósa Ágústsdóttir Morthens

Verðlaunasæti:
1.sæti: Bent Larsen Fróðason og Líney Sigurlaug Kristinsdóttir 124 högg
2.sæti: Rósa Ágústsdóttir Morthens og Steinn Árni Ásgeirsson 127 högg
3.sæti: Sigurður Sigurjónsson og Hildur Nielsen 132 högg
4.sæti: Guðrún R. Kristjánsdóttir og Ómar Örn Ragnarsson 132 högg
5.sæti: Arnar Páll Guðmundsson og Einrún Ósk Magnúsdóttir 133 högg
6.sæti: Steimar Heiðar Rögnvaldsson og Guðrún Sigurðardóttir 133 högg
7.sæti: Böðvar Þórir Kristjánsson og Guðrún Karítas Garðarsdóttir 133 högg
8.sæti: Einar Einarsson og Hafdís Ævarsdóttir 133 högg