Stórglæsilegu Hjóna- og paramóti Icelandair og GA lokið

Lokahóf Hjóna- og parakeppni Icelandair og GA var haldið á laugardagskvöldið síðastliðið og heppnaðist það einstaklega vel og það sama má segja um mótið allt, keppendur alsælir með skemmtilegt mót. Alls voru 208 keppendur mættir til leiks með það að markmiði að njóta þess að spila golf í góðum félagsskap og auðvitað reyna sitt til að vinna mótið og var gríðarleg spenna í keppninni og fór það svo að það voru þau Sigurður Sigurjónsson og Hildur Nielsen sem sigruðu mótið á -23 höggum! Frábært golf sem þau hjónin spiluðu og svo sannarlega verðugir sigurvegarar. 

Keppendur skemmtu sér einstaklega vel á lokahófinu og kom Daníel Andri og greip í gítarinn og spilaði og söng. Friðjón og hans einvala starfslið hjá Jaðar Bistro eldaði dýrindismat fyrir keppendur eins og svo oft áður og var gleðin svo sannarlega við völd.
Við hjá Golfklúbbi Akureyrar viljum þakka keppendum kærlega fyrir þátttökuna og viljum einnig þakka Icelandair fyrir frábært samstarf í kringum mótið en við hlökkum strax mikið til næsta árs.

Hér má sjá alla verðlaunahafa í mótinu:
Föstudagur -
4. hola: Magnús Ingólfsson 160cm
8. hola: Sigrún Edda 129cm
11. hola: Ágúst Jensson 97cm
14. hola: Arinbjörn Kúld 92cm
18. hola: Hildur Alexía Pálsdóttir 86,5cm
Lengsta drive karlar: Skúli Arnarson
Lengsta drive konur: Sigrún Edda

Laugardagur -
4. hola: Árni Örn Hólm Birgisson 195cm
8. hola: Jón Þór Gunnarsson 93cm
11. hola: Björgólfur Jóhannsson 104cm
14. hola: Herdís Jónsdóttir 127cm
18. hola: Guðrún Kristjánsdóttir 146cm
10. hola í tveimur höggum: Hlín Hólm og Guðbjörn Árnason 242cm

Verðlaunasæti:
1.sæti: Sigurður Sigurjónsson og Hildur Nielsen 119 högg
2.sæti: Guðlaug María Óskarsdóttir og Jónas Jónsson 120 högg
3.sæti: Ingi Torfi Sverrisson og Linda Rakel Jónsdóttir 124 högg
4.sæti: Konráð Þór Sigurðsson og Sigríður Guðmundsdóttir 128 högg
5.sæti: Jóhanna Dröfn Kristinsdóttir og Valþór Þorgeirsson 129 högg
6.sæti:  Eiríkur Ólafsdóttir og Júlíana Jónsdóttir 129 högg
7.sæti: Anna Einarsdóttir og Arinbjörn Kúld 129 högg
8.sæti: Óskar Jensson og Björg Ýr Guðmundsdóttir 129 högg