Stelpurnar örugglega upp í efstu deild

Kvennasveit GA var rétt í þessu að tryggja sig örugglega upp í efstu deild á næsta ári með 3-0 sigri á Golfklúbbnum Leyni. Stelpurnar unnu alla sína leiki og töpuðu aðeins einum fjórmenning í fimm umferðum!

Sveitina skipuðu þær Stefanía Kristín Valgeirsdóttir, Sunna Sævarsdóttir, Stefanía Elsa Jónsdóttir, Andrea Ýr Ásmundsdóttir, Brynja Herborg Jónsdóttir og Ólavía Klara Einarsdóttir.

Frábær árangur hjá stelpunum okkar og getum við hjá GA verið gífurlega stolt af þeim.