Stefanía Elsa og Ævarr valin í æfingahóp hjá GSÍ

Stefanía Elsa Jónsdóttir og Ævarr Freyr Birgisson voru valin í æfingahóp hjá GSÍ 15 - 16 ára unglinga.

Æfingabúðirnar eru að Hellishólum núna dagana 6. og 7. júni. Við val á unglingum í æfingahóp GSÍ er tekið mið af árangri þeirra í golfmótum og þá helst á norðurlandsmótaröðinni síðast liðið ár. Er þetta mikil viðurkenning fyrir þau.

Núna um helgina eru þau að taka þátt í 2. stigamóti GSÍ Aríonbankamótaröðinni sem fram fer á Suðurnesjunum.  

Aðrir unglingar frá GA sem eru að fara í mótið um helgina eru Óskar Jóel, Eyþór Hrafnar, Víðir Steinar, Kristján Benedikt og Tumi Kúld. Óskum við þeim góðs gengis.