Stefanía að gera það gott með golfliði Pfeiffer háskólans

Stefanía Kristín og golflið hennar í Pfeiffer urðu í 7 sæti af 16 háskólum  á The Wingate Pinehurst Challenge

Okkar kona Stefanía Kristín Valgeirsdóttir  og „The Falcons“, golflið Pfeiffer háskóla luku leik í gær á The Wingate Pinehurst Challenge, sem fram fór dagana 18.-19. mars 2013 í Norður-Karólínu.  

Þátttakendur voru 90 frá 16 háskólum.   Stefanía Kristín var á 3. besta skori liðs síns „The Falcons“, samtals 166 höggum (85 81) og bætti sig því um 4 högg milli daga. Hún lauk keppni T-27, fór upp um 2 sæti í einstaklingskeppninni.  

 „The Falcons“, lið Pfeiffer háskóla lauk keppni í  7. sæti og taldi skor Stefaníu Kristínar.  Næsta mót Stefaníu Kristínar og „The Falcons“ er Agnes McAmis Memorial, sem fram fer í Greenville, Tennessee, dagana 8.-9. apríl n.k.