Staðan hjá Andreu og kvennalandsliðinu í Portúgal

Við í GA eigum frábæran kylfing, hana Andreu Ýr, sem á dögunum var valin í kvennalandsliðið í golfi. Hún ferðaðist með hópnum til Portúgal til að taka þátt í Evrópumeistaramótinu í liðakeppni. Þar hefur verið leikinn höggleikur í gær og í dag. Íslensku stelpurnar voru í 14. sæti eftir fyrri daginn, en þar spilaði Andrea á 79 höggum(+3). Í dag lék Andrea á 80 höggum, og er íslenska liðið komið upp í 13. sæti mótsins. 

Það verður gaman að fylgjast með okkar konu á næstu dögum þegar holukeppnisleikirnir hefjast. Seinna í dag kemur í ljós hvaða lönd munu lenda með Íslandi í riðli.