Staðan eftir fyrsta dag í Akureyrarmóti

Akureyrarmótið hófst hjá okkur í dag þegar að yngstu kylfingarnir okkar hófu leik.

Veður var með besta móti og skemmtu allir sér konunglega og sáumst mörg mjög góð skor hjá krökkunum.

Stöðuna er hægt að nálgast inn á golf.is ásamt því sem rástímar fyrir morgundaginn eru komnir inn.

Á morgun ræsir hluti krakkanna út á 10. teig og biðjum við ykkur að sýna þeim fyllstu tillitsemi þar sem þau eru mörg hver að stíga sín fyrstu skref í golfinu og hafa fullan forgang á vellinum á morgun.