Staðan eftir 3. dag Íslandsmóts

Þá er þriðja degi Íslandsmótsins í golfi 2021 lokið. Flottar aðstæður voru hér á Jaðri í dag og voru kylfingar að nýta sér það. Þau Aron Snær Júlíusson og Hulda Clara Gestsdóttir leiða bæði í sínum flokki í mótinu eftir frábæra hringi.

Aron lék sinn hring á 69 höggum, fékk 3 fugla og 1 skolla. Hulda Clara átti flottan hring sem endaði í 70 höggum en hún fékk 3 fugla og 1 skolla. Heldur betur flottur hringur hjá þeim báðum en nóg er eftir af mótinu. Mikil spenna er í karlaflokki en Aron leiðir með aðeins einu höggi en Hulda er með góða forustu í kvennaflokknum en hún leiðir með 14 höggum.

Stöðuna í mótinu, rástíma ofl. má sjá HÉR

Eins og áður hefur komið fram eigum við í GA 13 keppendur í mótinu sem stóðu sig vel í gær. Í karlaflokki er Tumi Hrafn Kúld jafn í 4. sæti á 1 höggi undir pari. Á eftir honum er Lárus Ingi sem lék á 2 höggum yfir pari í dag og er jafn í 10. sæti á 3 höggum yfir pari. Eyþór Hrafnar lék á flottum 70 höggum í dag og er hann jafn í 15. sæti. Örvar lék á 70 höggum í dag og er hann jafn í 21. sæti á 7 höggum yfir pari. Mikael spilaði á 72 höggum í dag og er í 28. sæti á 9 höggum yfir pari.  Ævarr lék á 76 höggum í dag og er jafn í 41. sæti. Skúli Gunnar lék á 79 höggum og er hann jafn í 47. sæti.

Andrea Ýr var eina konan frá GA sem komst í gegnum niðurskurðinn og lék hún í dag á flottum 75 höggum og er hún jöfn í 5. sæti á samtals 15 höggum yfir pari.

Mótið hefur gengið eins og í sögu hingað til og erum við spennt að krýna Íslandsmeistara karla- og kvenna hér á sunnudagskvöldið.