Staðan eftir 1. dag Íslandsmóts

seth@golf.is
seth@golf.is

Þá er fyrsta degi Íslandsmótsins í golfi 2021 lokið. Við fengum flottar spilaaðstæður hér á Jaðri í gær og voru margir keppendur sem nýttu sér það. Þau Hlynur Bergsson og Hulda Clara Gestsdóttir leiða bæði í sínum flokki í mótinu eftir frábæra hringi í gær.

Hlynur lék sinn hring á 66 höggum, fékk 6 fugla og 1 skolla eftir mjög stöðuga spilamennsku. Hulda Clara átti heldur betur skrautlegan hring í gær sem endaði í 70 höggum. Hún fékk hvorki meira né minna en 7 fugla, 1 skolla, 1 tvöfaldan- og 1 þrefaldan skolla. Heldur betur flottur hringur hjá þeim báðum en nóg er eftir af mótinu og ekki langt í næstu kylfinga. 

Stöðuna í mótinu, rástíma ofl. má sjá HÉR

Eins og áður hefur komið fram eigum við í GA 13 keppendur í mótinu sem stóðu sig vel í gær. Í karlaflokki er Tumi Hrafn Kúld jafn í 5. sæti eftir hring upp á 70 högg í gær. Á eftir honum koma Mikael Máni og Eyþór Hrafnar á 74 höggum, jafnir í 22. sæti. Andrea Ýr spilaði best af okkar konum og kom í hús á 77 höggum, Stefanía Kristín og Auður Bergrún voru á 82 & 89 höggum í gær. 

Aldursforseti og farsælasti kylfingurinn sem spilar fyrir okkar hönd í mótinu, Björgvin Þorsteinsson, lék flott golf af hvítu teigunum í gær og endaði á 84 höggum. 9 högg á 12. brautinni hrjáðu honum en engu að síður öflugur hringur hjá okkar manni.

Mótið hefur gengið eins og í sögu hingað til og erum við spennt að krýna Íslandsmeistara karla- og kvenna hér á sunnudagskvöldið.