Skúli Gunnar stigameistari í flokki 15-16 ára

mynd/ seth@golf.is
mynd/ seth@golf.is

Skúli Gunnar Ágústsson varð á dögunum stigameistari 2022 í unglingamótaröð GSÍ í flokki 15-16 ára og bætti þar með enn einni rósinni í hnappagatið.

Skúli. sem hefur leikið frábært golf í sumar, varð efstur á stigalistanum með 4360 stig en hann sigraði á tveimur mótum af fimm, varð til að mynda Íslandsmeistari í höggleik. Guðjón Frans, GKG, varð í öðru sæti með 4138 stig og Veigar Heiðarsson GA í 3. sæti með 3928 stig. Veigar var alltaf í einu af fjórum efstu sætunum á mótum tímabilsins og sigraði til að mynda á fyrsta stigamóti tímabilsins.

Frábært sumar hjá strákunum okkar og óskum við þeim til hamingju með flottan árangur á golfvellinum.