Í tilefni þess að Jaðarsvöllur er að opna á mánudaginn hafa vinir okkar í Skógarböðunum ákveðið að bjóða GA meðlimum tveir fyrir einn í Skógarböðin mánudag, þriðjudag og miðvikudag.
Það er tilvalið að skella sér í flottustu böð landsins eftir fyrsta hring sumarsins og taka einhvern vin með sér. Það sem GA félagar þurfa að gera er að sýna meðlimaskírteinið sitt í golfbox appinu (stafrænt kort) í afgreiðslu Skógarbaðana.
Hlökkum til að taka á móti ykkur á Jaðarsvelli og þökkum vinum okkar í Skógarböðunum fyrir þessi kjör.