Skipt um gólfefni á Jaðri

Í morgun hóf vösk sveit GA félaga að rífa gamla bláa teppið af golfskálanum.  Nú er komið að því að skipta því út og setja fallegt parket í staðinn.

Þetta er talsvert mikil vinna og það á að halda áfram á morgun sunnudaginn, 10. janúar kl. 10:00.

Það er öll aðstoð virkilega vel þegin, þannig að ef þú hefur tök á því að mæta þá ertu hjartanlega velkominn.  Margar hendur vinna létt verk :)