Skápar í gömlu byggingum

Við biðjum við þá kylfinga sem eru með skápa í þessum gömlu byggingunum að kanna númer hvað þeirra skápur er og koma upp í afgreiðslu og láta vita ásamt því að skrifa undir skápasamning. Einnig biðjum við þá sem eru hættir með skápa í gömlu byggingunum að koma og láta vita númer hvað sá skápur er svo við vitum að hann sé laus. 

Þar sem margir hafa fært sig yfir á Klappir eru þó nokkrir skápar sem standa auðir í gömlu byggingunum og langar okkur að fá betri yfirsýn yfir það, þess vegna er þetta gert. 

Ef þið komist ómögulega upp í skála fyrir þann tíma til að gera grein fyrir ykkur og hvar ykkar skápur er biðjum við ykkur um að hafa samband á skrifstofa@gagolf.is eða í síma 462-2974.