Skápagjöld fyrir Klappir og Golfhöllina komnir í heimabanka

Kæru GA meðlimir

Nú hafa skápagjöld fyrir árið 2021 verið sett í heimabankann. Þetta eru heilsárskápar í Klöppum sem um ræðir og hvetjum við ykkur að ganga frá þeirri greiðslu sem fyrst - krafan ber ekki vexti eftir eindaga en hvetjum við alla meðlimi til að ganga frá greiðslunni sem fyrst eða gera grein fyrir sínum málum. 

Einnig hafa verið sendir reikningar fyrir skápagjöldum í Golfhöllinni. 

Töluverð eftirspurn er eftir skápum í Klöppum og í Golfhöllinni og er biðlisti fyrir skápum þannig ef einhverjir ætla ekki að nýta sér þessa frábæru aðstöðu viljum við biðja viðkomandi um að hafa samband á jonheidar@gagolf.is