Skápagjöld fyrir Klappir og Fjós komin í heimabanka

Kæru GA meðlimir

Nú hafa skápagjöld fyrir árið 2026 verið sett í heimabankann. Þetta eru heilsárskápar í Klöppum og Fjósi sem um ræðir og hvetjum við ykkur að ganga frá þeirri greiðslu sem fyrst eða gera grein fyrir sínum málum. Eindagi er á kröfunni 11. nóvember. 

Töluverð eftirspurn er eftir skápum og er biðlisti eftir þeim þannig ef einhverjir ætla ekki að nýta sér þessa frábæru aðstöðu viljum við biðja viðkomandi um að hafa samband á jonheidar@gagolf.is