Skápagjöld fyrir Golfhöll, Klappir og Fjós komin í heimabanka

Kæru GA meðlimir

Nú hafa skápagjöld fyrir árið 2024 verið sett í heimabankann. Þetta eru heilsárskápar í Klöppum og fjósi sem um ræðir sem og skápar í Golfhöllinni og hvetjum við ykkur að ganga frá þeirri greiðslu sem fyrst - krafan ber ekki vexti eftir eindaga en hvetjum við alla meðlimi til að ganga frá greiðslunni sem fyrst eða gera grein fyrir sínum málum. 

Töluverð eftirspurn er eftir skápum í Klöppum og í Fjósinu og er biðlisti fyrir skápum á báðum stöðum þannig ef einhverjir ætla ekki að nýta sér þessa frábæru aðstöðu viljum við biðja viðkomandi um að hafa samband á jonheidar@gagolf.is