Sjálfboðaliðar óskast fyrir Íslandsmót eldri kylfinga 50+

Dagana 14.-16.júlí verður Íslandsmót eldri kylfinga haldið á Jaðarsvelli og til að gera það mót sem glæsilegast þarf margar hendur til og óskar Golfklúbbur Akureyrar eftir sjálfboðliðum. Óskað er eftir aðstoð við framkvæmd mótsins, t.d. skorkortamóttaka, ræsingu,eftirliti á velli ásamt forkaddýum.

Fullt er í mótið og mikil tilhlökkun til þess að hér verði góð upplifun kylfinga.

Áhugasamir mega endilega hafa samband við starfsfólk GA eða steindor@gagolf.is

Bestu kveðjur 

Starfsfólk GA