Sjálfboðaliðar óskast á Íslandsbankamótaröðina

Nú um helgina erum við með Íslandsbankamótaröðina á Jaðarsvelli. Mótið er liður í unglingamótaröð GSÍ en þar keppa bestu unglingar landsins um stigameistaratitill.

Til að mótið gangi sem best þurfum við á sjálboðaliðum að halda í ýmis störf um helgina en spilað er allan laugardag og sunnudag og á milli 12-16 á föstudegi.

Það vantar til að mynda í skorkortamóttöku, forecaddy og fleira skemmtilegt. 

Áhugasamir hafið samband í 462-2974 eða á jonheidar@gagolf.is