East Tennessee State, háskólinn sem Veigar er í, gerði sér lítið fyrir og sigraði Highlands Invitational sem lauk í gær. Skólinn spilaði hringina þrjá á samtals 21 höggi undir pari og var einu höggi betri en Wake Forest sem lenti í öðru sæti.
Frábær byrjun hjá Veigari og félögum hans í ETSU en eins og við höfðum áður greint frá lentu þeir í 2. sæti á fyrsta móti vetrarins og er því ljóst að liðsmenn ETSU koma mjög vel undan sumri.
Veigar lék frábært golf og lék alla þrjá hringina á móti undir pari og endaði jafn í 3. sæti mótsins í einstaklingskeppninni á -7 höggum (70-69-70).
Frábært mót hjá Veigari og félögum og óskum við honum til hamingju með árangurinn.
Hér má sjá niðurstöður úr mótinu