SiglóGolf lokar fyrir veturinn

Nú hefur SiglóGolf verið lokað fyrir veturinn eftir afar ánægjulegt golfsumar. Völlurinn var opinn í alls 128 daga, sem telst einstaklega gott miðað við aðstæður og með því besta sem gerist.

Völlurinn naut mikilla vinsælda meðal félagsmanna GKS og gestakomur voru einnig töluverðar yfir sumarið. Ljóst er að þessi einstaka golfperla veitti fjölmörgum kylfingum ánægjulegar stundir í sumar.

Mikil vinna var lögð í umhirðu og uppbyggingu vallarins á tímabilinu og viljum við færa starfsfólki okkar bestu þakkir.

Nú á haustmánuðum var farið í drenvinnu á fyrstu brautinni og verður gaman að sjá hvernig útkoman á því verður. 

Við þökkum fyrir sumarið og hlökkum til að taka á móti kylfingum á ný þegar SiglóGolf opnar aftur næsta vor.