Þriðji dagur á Íslandsmótinu í golfi er hafinn og var niðurskurður eftir fyrstu tvo dagana.
Í kvennaflokki komust þær Lilja Maren og Andrea Ýr áfram í gegnum niðurskurðinn.
Lilja Maren var á +9 höggum eftir tvo fyrstu keppnisdagana eftir að hafa spilað á 78-73 og er í 9.sæti. Andrea Ýr spilaði á 80-75 og var á +13 eftir fyrstu tvo keppnisdagana. Björk Hannesdóttir komst ekki í gegnum niðurskurð en hún lék hringina tvo á +19 77-84.
GA átti 10 keppendur í karlaflokki.
Þeir Barri Björgvinsson og Veigar Heiðarsson léku best af þeim fyrstu tvo dagana og voru báðir jafnir í 18.sæti eftir tvo daga á +5 höggum. Veigar lék fyrsta hringinn á +8 höggum en var þrjá undir pari í gær og er að sækja í sig veðrið í dag en hann er -4 eftir 12 holur og kominn upp í 7.sætið. Barri er búinn að leika flott og stöðugt golf, 75-72 og er á pari eftir 12 holur í dag. Mikael Máni var á +8 eftir fyrstu tvo dagana 78-72 og er +3 í dag eftir 13 holur og Ágúst Már var á +9 eftir tvo hringi 72-78 og er síðan +7 í dag eftir 16 holur.
Hinir sex GA strákarnir komust ekki í gegnum niðurskurð:
Óskar Páll +11 78-75
Valur Snær +14 79-77
Patrekur Máni +15 78-79
Arnar Freyr +15 76-81
Maron Björgvinsson +23 83-82
Hafsteinn Thor +13 84-DNS
Við óskum okkar krökkum góðs gengis og minnum á beina útsendingu hjá RÚV frá 15:00 í dag og hægt er að fylgjast svo með stöðuna hér