Sérstakur íþrótta- og tómstundarstyrkur vegna Covid-19

Aukin styrkur til íþrótta og tómstunda vegna Covid-19.

Vakin er athygli á íþrótta- og tómstundarstyrkjum fyrir grunnskólabörn sem búa á heimilum þar sem heildartekjur framfærenda, einstaklings, hjóna eða sambúðarfólks, voru lægri en 740.000 kr. að meðaltali á mánuði á tímabilinu mars - júlí árið 2020. Um er að ræða sérstakt verkefni félags- og barnamálaráðherra í kjölfar Covid-19 faraldursins. Styrkurinn er veittur vegna barna sem fædd eru á árunum 2005-2014 og er að hámarki 45.000 krónur á hvert barn sem stundar skipulagt tómstunda- og/eða íþróttastarf undir leiðsögn þjálfara eða leiðbeinanda. Athugið að hægt er að koma með kvittanir fyrir íþrótta- og tómstundarstarfi sem greitt var fyrir í upphafi árs, eða frá hausti 2020. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar og kanna rétt sinn til styrksins með því að skrá sig inn hér (https://island.is/styrkur-til-ithrotta-og-tomstundastarfs)

Hér er hægt að horfa á kynningarmyndbönd um íþrótta- og tómstundastyrkina á nokkrum tungumálum.