Samherji styrkir barna og unglingastarf GA

Samherji hf. boðaði til móttöku í á dögunum í KA-heimilinu á Akureyri og afhenti við það tækifæri styrki til ýmissa samfélagsverkefna á Eyjafjarðarsvæðinu upp á rúmar 80 milljónir króna. 

Flestir styrkirnir eru gagngert veittir til að efla barna- og unglingastarf í íþrótta- og æskulýðsfélögum á Eyjafjarðarsvæðinu. Þetta er sjötta árið í röð sem Samherji afhendir slíka styrki.

Þátttaka barna og unglinga í íþróttum er ómetanlegur í forvörnum og uppeldi. Samherji vill efla þjálfun og annað starf félaganna og um leið stuðla að því að sem flest börn og unglingar geti stundað þær íþróttagreinar sem hugur þeirra stendur til. Fjármununum skal varið til að lækka æfingagjöld barna og unglinga og/eða til að lækka kostnað við keppnisferðir þeirra.

Golfklúbbur Akureyrar fékk við þetta tækifæri styrk að upphæð kr. 600.000.-

Fyrir hönd allra barna – og unglinga í Golfklúbbi Akureyrar sendum við okkar bestu þakkir til Samherja, styrkur sem þessi er ómetanlegur inn í okkar starf.

Mynd fengin á Vikudagur.is