Samherjastyrkur

Mynd Þórhallur Pedromyndir
Mynd Þórhallur Pedromyndir
Samherji veitir styrki að upphæð kr. 75 millj. til samfélagsverkefna á Eyjafjarðarsvæðinu.

Samherji hf. boðaði til móttöku miðvikudaginn 29. desember í Flugsafni Íslands á Akureyri og afhenti við það tækifæri styrki til ýmissa samfélagsverkefna á Eyjafjarðarsvæðinu upp á 75 milljónir króna. Flestir styrkirnir eru gagngert veittir til að efla barna- og unglingastarf í íþrótta- og æskulýðsfélögum á Eyjafjarðarsvæðinu.

Þátttaka barna og unglinga í íþróttum er ómetanlegur þáttur í forvörnum og uppeldi. Samherji vill með styrkjum þessum taka þátt í að efla þjálfun og annað starf félaganna og um leið stuðla að því að sem flest börn og unglingar geti stundað þær íþróttagreinar sem hugur þeirra stendur til. Fjármununum skal varið til að lækka æfingagjöld barna og unglinga og/eða til að lækka kostnað við keppnisferðir þeirra.

Golfklúbbur Akureyrar fékk við þetta tækifæri styrk að upphæð kr. 600.000.-  

Fyrir hönd allra barna – og unglinga í Golfklúbbi Akureyrar sendum við okkar bestu þakkir til Samherja.