Ryder Cup leikur GA #2

Nú er fyrirliði Evrópu búinn að velja þá fjóra kylfinga sem bætast við firnisterka sveit þeirra. Það voru þeir:

Henrik Stenson
Paul Casey
Ian Poulter 
Sergio Garcia

Tveir kylfingar GA giskuðu á þessa fjóra kylfinga, þeir Baldur Ingi og Ólafur Pálsson, verður dregið á milli þeirra og úrslit kunngjörð úr þeim útdrætti á sama tíma og sigurvegari úr leik tvö verður kynntur.

Í lið Bandaríkjamanna er aðeins eitt laust pláss eftir að fyrirliði þeirra valdi þá Tiger Woods, Phil Mickelson og Bryson Dechambeau fyrir skemmstu. Bættust þeir í hóp gríðarlega sterkra kylfinga en fyrir voru þeir:

Rickie Fowler
Dustin Johnson
Brooks Koepka
Patrick Reed
Webb Simpson
Jordan Spieth 
Justin Thomas
Bubba Watson

Nú er komið að Ryder Cup leik tvö hjá okkur í GA, sama fyrirkomulag og síðast, þið sendið nafnið á þeim kylfing sem þið haldið að vermi síðasta lausa sætið í liði Bandaríkjamanna og gætuð átt von á paráfyllingu á Klappir! Svörin sendist á jonheidar@gagolf.is fyrir 9. september. Ef tveir eða fleiri eru með rétt verður dregið á milli þeirra.