Ryder Cup leikur GA

Á morgun kl.13:00 mun fyrirliði evrópska liðsins, Thomas Björn, velja þá fjóra kylfinga sem munu bætast við sveit Evrópu í Ryder Cup keppninni sem fer fram 25-30 september næst komandi. Nú þegar hafa átta kylfingar spilað sig inn í sveitina en það eru þeir:

Justin Rose
Tommy Fleetwood
Alex Noren
Tyrrell Hatton
 Rory McIlroy
Francesco Molinari
Jon Rahm
Thorbjorn Olesen

Við hjá GA erum spennt fyrir þessu gríðarlega skemmtilega móti og ætlum því að efna til smá leiks. Það sem þú þarft að gera til að taka þátt er að senda þau fjögur nöfn sem þú heldur að bætist við lið Evrópu á jonheidar@gagolf.is og þú gætir átt von á paráfyllingu (boltakorti) á Klappir.

Svör þurfa að berast fyrir klukkan 12:00 á hádegi, á morgun, miðvikudag. Ef fleiri en einn er með alla kylfinga rétta verður dregið á milli þeirra. 

Við munum svo birta frekari fregnir og undirbúning fyrir Ryder Cup keppnina á næstu vikum og hita fólk upp fyrir skemmtunina.