Í kvöld klukkan 20:00 munum við opna fyrir rástímaskráningar frá 1.6 - 31.8 og geta félagsmenn okkar haft allt að fjóra rástíma bókaða á því tímabili.
- Hver félagsmaður fær að hafa að hámrki fjóra rástíma bókaða í einu
- Þegar einn rástími er nýttur er strax hægt að bóka næsta tíma
- Bókanir samdægurs teljast ekki inn í þessa fjóra rástíma
- GA félagar geta einungis bókað aðra GA félaga með sér á rástíma - hægt er að bóka gesti með sér í tölvupósti á skrifstofa@gagolf.is
- Afbóka þarf að lágmarki 90 mínútum fyrir rástíma ef félagsmaður ætlar ekki að nota rástímann
- Staðfesta þarf rástíma í Mitt Golf appinu fyrir hring eða inn í afgreiðslu á skjá.
- Ef félagsmaður mætir ekki á skráðan rástíma þá kemur hann í veg fyrir að annar félagsmaður geti nýtt sér rástímann og við því eru viðurlög
- 1. brot - áminning
- 2. brot - lokað fyrir rástímaskráningu í 7 daga
- 3. brot - lokað fyrir rástímaskráningu í 14 daga
- 4. brot - lokað fyrir rástímaskráningu í 21 dag
- 5. brot - lokað fyrir rástímaskráningu út golfárið
- Ekki er leyfilegt að bóka aðra kylfinga með sér í holl nema þeir ætli að mæta í rástímann sjálfir.
- Ekki er leyfilegt að "lána" félagsaðild sína með því að skrá sig á rástíma og leyfa öðrum að leika undir sínu nafni.
Nánar um þetta rástímafyrirkomulag er hægt að lesa hér