Rástímabókun breytist fimmtudaginn 10. september

Athugið kæru GA félagar og aðrir,

Þar sem það er farið að dimma snemma á kvöldin ætlum við að breyta bókunarkerfinu okkar á rástímum frá og með fimmtudeginum 10. september til þess að koma til móts við okkar félagsmenn svo að sem flestir komist í golf seinni partinn eftir vinnu. 

Nú verður hægt að bóka sig á 9 holur seinni part dags, bæði á 1. teig og 10. teig.

Dagarnir/rástímaskráning verða því settir svona upp:

Jaðarsvöllur - Jaðar 18 holur 08:00 - 13:50. Þeir kylfingar sem bóka sig á þessum tíma þurfa ekki að bóka sérstaklega seinni 9 holurnar vilji þeir halda áfram.

Jaðar fyrri 9. 14:00 -20:00. Þeir kylfingar sem bóka sig á þessum tíma og vilja spila 18 holur þurfa þá að bóka sig á rástíma á 10. teig (Jaðar seinni 9. 16:20 - 20:00) til þess að spila seinni 9.

Jaðar seinni 9. 16:20 -20:00.

Við vonumst eftir því að GA félagar hafi nú meira tækifæri til að spila golf eftir vinnu og að þetta eigi eftir að koma vel út. 

Athugið að breytingin tekur gildi fimmtudaginn 10.september.