Púttmótaröð GA 2018

Púttmótaröð GA 2018


 

Undankeppni:

Hefst þriðjudaginn 12. desember
Leikinn er betri bolti, (betra skorið á holuna telur). Tveir eru saman í liði, ath. sama liðið allt mótið.
Leiknar eru 36 holur í hvert skiptið og telja báðir hringirnir
Alls verða 10 dagar (skipti) í undankeppninni og munu 6 bestu dagar (6x36 holur) hvers liðs telja
Leikmenn skrá skor sitt að loknum leik, á sérstakt skorblað sem mun vera á töflunni í kaffistofunni og verður staðan uppfærð það eftir hvern dag. 

Leikið verður á þessum þriðjudögum milli kl. 18:00-20:00
12. des.
19. des.
2. jan.
9. jan.
16. jan.
23. jan.
30. jan.
6. feb.
13. feb.
20. feb.

8 efstu liðin, eftir undankeppnina munu svo fara áfram í útsláttarkeppni, (holukeppni 36 holur - betri bolti)

ATH. Öll æfingaaðstaða, önnur en púttvöllurinn, er opin á þessum tímum.
Upp getur komið að hliðra þurfi degi eða tíma þá er það auglýst sérstaklega


Úrslitakeppni:

8 efstu liðin eftir undankeppnina munu leika 36 holu holukeppni í betri bolta sín á milli, kl. 18:00 

27. feb. - 8 liða úrslit (1. sæti gegn 8. sæti, 2. sæti gegn 7. sæti...o.s.frv.)
6. mars - Undanúrslit
13. mars - Úrslitaleikiir (leikið um 1. sæti og 3. sæti)