Langar þig í nýjan pútter?
Sérfræðingur frá ÓJ&K-ÍSAM verður í inniaðstöðunni okkar á Jaðri um helgina með úrval af pútturum frá PING og Titleist.
Þetta er frábært tækifæri til að prófa mismunandi púttara, fá góð ráð frá sérfræðingi og finna þann sem hentar þér best!
Tímasetningar:
Laugardaginn 10. október kl. 13:00–15:00
Sunnudaginn 11. október kl. 11:00–15:00
Við hvetjum alla áhugasama til að kíkja við og prófa!