Pub-Quiz í golfskálanum á laugardagskvöld!

Á laugardagskvöldið næsta ætlum við að hafa gaman saman í golfskálanum á Jaðri! 

Pub-quiz verður haldið klukkan 20:00 og verður Fiddi á Jaðar-Bistro með tilboð af mat og drykk þannig hægt er að mæta snemma upp í skála og næra sig vel.
Börger og kaldur - 3.500kr.
Börger og gos - 3.000kr.
Pizza með 3 áleggjum og kaldur - 3.500kr.
Pizza með 3 áleggjum og gos - 3.000kr.
Kjúklingavængir og kaldur - 2.500kr.

Barsvarið (e.Pub-quiz) er opið öllum, ekki einungis þeim sem taka þátt í mótinu, og eru verðlaun fyrir efstu tvö sætin. Tveir skipa saman eitt lið og hefst það 20:00. Við viljum endilega fá sem flesta upp í skála á laugardagskvöldinu og eiga gott kvöld saman. Tilvalið að fara yfir allt sem hefur undan á gengið í Akureyrarmótinu og undirbúa sig undir lokadaginn. Síðan er lokahófið haldið á sunnudagskvöldinu.