Póstlisti GA

Nú höfum við hjá GA farið af stað með nýjung hjá okkur en við ætlum að senda út póst á 2-4 vikna fresti allt árið um kring hjá okkur með helstu fréttum úr starfinu hjá okkur. 

Fyrsti póstur var sendur út í dag á þá sem voru skráðir á póstlista og munum við halda GA kylfingum upplýstum um gang mála hjá okkur með þessu fyrirkomulagi. 

Fyrir þá sem fengu ekki póst en hafa áhuga á að vera á póstlistanum er þeim bent á að senda tölvupóst á jonheidar@gagolf.is og óska þar eftir að vera skráð á póstlista.