Ping Jaðarsmótið í gangi um helgina

Í dag hófst Ping Jaðarsmótið en mótið er hluti af unglingamótaröð GSÍ og erum við gríðarlega ánægð að hafa mesta efnivið landsins hér á Jaðarsvelli þessa helgina. Völlurinn er í flottu standi og er gaman að geta boðið okkar efnilegustu kylfingum upp á völlinn þessa dagana. 

Mikil traffík er á vellinum og bendum við golfþyrstum GA félögum á að stórskemmtilegt texas scramble golfmót er á Siglufirði á morgun laugardag, Segull 67 open. Enn er hægt að skrá sig í mótið en skráning fer fram hér: https://tourentry.golfbox.dk/?cid=4038792

Það er sannkölluð rjómablíða á Jaðarsvelli og hvetjum við að sjálfsögðu sem flesta til að kíkja upp á völl og fylgjast með framtíðinni takast á við Jaðarsvöll.