Páskaopnun á Jaðri

Golfklúbbur Akureyrar verður með opið alla páskana! 

Við ætlum að hafa sannkallaða golfveislu um páskana og verða golfhermarnir okkar á Jaðri opnir alla páskana og hvetjum við kylfinga til að koma við og halda sveiflunni við þar sem það styttist í sumarið.

Opnunartími er sem hér segir:
Skírdagur: 10:00 - 22:00
Föstudagurinn langi: 10:00 - 20:00
Laugardagur: 10:00 - 19:00 
Páskadagur: 10:00 - 19:00
Annar í páskum: 10:00 - 22:00

Kíkið í golf um páskana upp á Jaðar!