Páska Púttmót - Betri Bolti

Á laugardaginn milli kl. 11-14, munum við halda skemmtilegt Páska-Púttmót í golfhöllinni til styrktar unglingastarfi GA.

Tveir eru saman í liði og gildir betra skorið á hverri holu.  
Leiknir eru tveir 18 holu hringir og eru veitt verðlaun fyrir 3 efstu sætin.

Mótsgjaldið er 1.000 kr. á mann og er til styrktar unglingastarfi GA.

Fjölmennum í skemmtilegt mót! 

Með kveðju, Unglinganefnd GA.