Óskum eftir vösku fólki í vallareftirlit, ræsingu og önnur störf

GA leitar eftir vöskum aðilum til að sinna vallareftirliti á Jaðarsvelli og æfingavelli, ræsingu og aðstoð með golfbíla og önnur tilfallandi verk í sumar með okkur. Þetta er tilvalið fyrir þá GA félaga og aðra sem eru í vaktavinnu eða hættir á hinum almenna vinnumarkaði. 

Hlökkum til að heyra frá áhugasömum einstaklingum.

Áhugasamir geta haft samband á steindor@gagolf.is fyrir frekari upplýsingar.