Óskum eftir sjálfboðaliðum fyrir Hjóna- og parakeppnina á morgun

Kæru GA félagar

Á morgun hefst Hjóna- og parakeppni Golfskálans og GA en mótið er eitt það stærsta sem við hjá GA höldum ár hvert. 208 þátttakendur eru skráðir til leiks og hlökkum við mikið til að taka á móti þeim á Jaðarsvelli.

Við verðum með veitingatjöld á morgun, föstudag, á 5. og 14. holu þar sem keppendum verður boðið upp á létta hressingu og vantar okkur hressa sjálfboðaliða til að aðstoða með þau. 

Vaktirnar eru frá ca. 10:50-13:30 og síðan frá 15:10-17:00. 

Þeir sem geta aðstoðað okkur hjá GA eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband í síma 462-2974 eða á jonheidar@gagolf.is og láta vita hvenær þeir geta hjálpað.