Örvar og Stefanía með góða forystu í Meistaraflokkum

Lokadagur Meistaramóts klúbbsins hófst klukkan 7:30 í morgun í blíðskaparveðri.

Fyrir lokadaginn í Meistaraflokkum karla og kvenna hafa þau Örvar Samúelsson og Stefanía Kristín Valgeirsdóttir, sigurvegarar frá því í fyrra, sannfærandi forystu. Meiri spenna er um önnur verðlaunasæti, og er hart barist í öðrum flokkum mótsins.

Úrslit liggja fyrir í flokkum eldri kylfinga, sem og flokki unglinga, en úrslit þessara flokka voru eftirfarandi:

50+ konur

1. sæti - Jakobína Reynisdóttir

2.sæti - Þórunn Anna Haraldsdóttir

3.sæti - Anna Freyja Edvardsdóttir

65+ konur

1.sæti - Guðný Óskarsdóttir

2.sæti - Aðalheiður Rósa Gunnarsdóttir

3.sæti - Svandís Gunnarsdóttir

55+ karlar

1.sæti - Viðar Þorsteinsson

2.sæti - Birgir Ingvasson

3.sæti - Vigfús Ingi Hauksson

70+ karlar

1.sæti - Árni Sævar Jónsson

2.sæti - Árni B. Árnason

3.sæti - Svanberg Jóhann Þórðarson

14 ára og yngri

1.sæti - Bjarni Aðalsteinsson

2.sæti - Lárus Ingi Antonsson

3.sæti - Þorlákur Már Aðalsteinsson 

Nánari úrslit má finna inn á www.golf.is/pages/motaskra

Verðlaunaafhending og lokahóf er áætlað klukkan 19:30 í kvöld í klúbbhúsinu.