Örvar lék vel á síðasta stigamóti

Örvar Samúelsson
Örvar Samúelsson

Örvar Samúelsson úr GA lék gríðarlega vel í erfiðum aðstæðum á Suðurnesinu um helgina. Endaði kappinn í 3.-4. sæti á 4 höggum yfir pari samtals, en hann lék hringina tvo á 75 og 73 höggum. Örvar endaði í 19. sæti á Eimskips mótaröðinni af 134 sem fengu stig. 

Gríðarlega flottur árangur hjá þessum högglanga kylfingi.