Opnunartími á Klöppum og afgreiðslu

Við höfum sett upp lýsingu á Klöppum og höfum við nú opið til 21:00 á kvöldin. Lýsingin nær um 100 metra og er gríðarlega skemmtileg að prufa að slá í myrkrinu og æfa sutta spilið í lýsingunni. 

Þá hefur afgreiðsla GA breytt opnunartíma sínum en nú er opið 8-16:00 alla virka daga. Við höfum áfram 25% afslátt af öllum fatnaði í golfbúðinni ásamt 50% afslætti af vissum vörum.

Við hvetjum fólk til að nýta sér þetta tilboð og minnum á að stutt er í opnun Golfhallarinnar og erum við farin að taka niður bókanir í fasta tíma í vetur, þeir fara hratt og því er gott fyrir þá sem hafa í huga að festa tíma að hafa samband sem fyrst á jonheidar@gagolf.is