Opnunarmót Jaðarsvallar 2022

 

Kæru kylfingar nær og fjær!

Við minnum á skráningu á Opnunarmót Jaðarsvallar næstkomandi sunnudag 29. maí.

Spilaðar verða 18 holur þrátt fyrir betrumbætingar á þriðju braut. Hola þrjú verður í staðin spiluð sem par 3 hola (ca 100m) og því mun mótið ekki gilda til forgjafar. Það mun þó ekki minnka gleðina því veðurfræðingar spá um 20 gráðu hita og sól á sunnudaginn! 

Frábært veður og mikil skemmtun! Ekki láta þetta framhjá þér fara.

Skráning fer fram á golfbox .

Hlökkum til að sjá ykkur

Starfsfólk GA