Opnunarmót Jaðars

Við opnum 16. holur um helgina og verður Opnunarmót Jaðars á laugardeginum. Vegna vinnu við æfingasvæðið er ekki hægt að opna gömlu 8. og 9. holu. Stefnan er á að hleypa inn á nýju holurnar helgina 5.-7.júní. 

Mótið er punktakeppni og verða veitt verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í punktakeppni og efsta sætið í höggleik án forgjafar. Einnig verða veitt verðlaun fyrir næstur holu á 4. og 18. holu.

Veðurspáin er fín fyrir laugardaginn og því um að gera að skrá sig á mótið, mótsgjald er 2000kr. Einnig stefnum við á það að opna æfingasvæðið um helgina.