Opnunarmót GA 6. júní

Opnunarmót Jaðarsvallar verður spilað þann 6. júní þetta árið og verður spilað á iðagræn sumargrín á öllum 18 holum vallarins.

Opnunarmót Jaðarsvallar 2020

Sumarið er gengið í garð hér fyrir norðan og því er ekkert í vegi fyrir því að halda fyrsta mót sumarsins. Þó að veðurspáin sé ekki sú besta fyrir helgina hefur hún átt það til að spá nokkrum gráðum of lágt hingað til í sumar og það verður bara lygnt og fínt veður um helgina.

Veitt verða verðlaun í tveimur mismunandi flokkum, höggleik án forgjafar og punktakeppni með forgjöf og eru þau eftirfarandi:

Höggleikur án forgjafar

  1. Sæti: FJ bolur, FJ GTXtreme hanski og 6 Titleist AVX boltar
  2. sæti: Titleist kuldahúfa og 6 Titleist AVX boltar
  3. sæti: Ping kuldahúfa og 6 Titleist Velocity boltar

Punktakeppni með forgjöf

  1. Sæti:  FJ bolur, FJ GTXtreme hanski og 6 Titleist AVX boltar
  2. Sæti: Titleist kuldahúfa og 6 Titleist AVX boltar
  3. Sæti: Ping kuldahúfa og 6 Titleist Velocity boltar

Nándarverðlaun verða á öllum par 3 holum: paráfylling á Klappir. 

Hámarksforgjöf er veitt 24 hjá körlum og 28 hjá konum. 

Unglingar 0-14 ára spila af rauðum teigum
Konur spila af rauðum teigum
Kalrar 70 ára og eldri spila af rauðum teigum
Karlar 15-69 ára spila af gulum teigum
Keppandi ber ábyrgð á að réttir teigar séu skráðir á skorkort sitt og spilað sé af réttum teigum. 

Verðlaun er hægt að nálgast á skrifstofu GA vikuna 8.-12. júní.