Opnun Klappa á morgun

Á morgun, föstudag, ætlum við að opna stórglæsilega æfingasvæðið okkar, Klappir. 

Svæðið verður opnað klukkan 17:00 og hvetjum við alla til að koma og fagna þeim stóra áfanga með okkur hér upp á Jaðri.

Glæný boltavél verður vígð með nýjum boltum og verður hægt að kaupa kort í hana eða token í afgreiðslunni í klúbbhúsinu.

Sjáumst hress í blíðunni á morgun.