Opnun golfvallar og afhending félagsskírteina

Tekin hefur verið ákvörðun um það að opna golfvöllinn á Jaðri næstkomandi sunnudag.  Við munum þó bara opna holur 1 - 9 þar sem við þurfum að gefa suðurvellinum aðeins meira tíma. Hægt verður að bóka rástíma frá og með næsta föstudegi.

Hægt verður að nálgast félagskírteinin á skrifstofu GA frá og með föstudeginum 16. maí.  EInungis þeir sem hafa greitt eða samið um greiðslu á árgjöldum geta fengið skírteinin afhent.

Golfbílar eru bannaðir á vellinum til að byrja með.

Núna á laugardaginn verðum við með vinnudag þar sem við ætlum að taka til hendinni og koma golfvellinum í sumarbúninginn :)

Vinnudagurinn hefst kl. 9:00 og áætlað er að hann standi til ca 12:00.  Að vinnudegi loknum verður boðið upp á hamborgara og pylsur og öllum þeim sem tóku þátt í vinnudeginum boðið í golf.

Vonandi sjáum við sem flesta GA félaga á laugardaginn.

Við opnum svo allar 18 holurnar laugardaginn 24. maí með skemmtilegu golfmóti.