Opna Kvennamót Forever um helgina

Nú er komið að hinu stórglæsilega opna kvennamóti Forever, sem haldið verður á sunnudaginn, 27. júní. Spáð er 17 gráðu hita og logni svo við hvetjum allar konur til að skrá sig í mótið og eiga flottan dag í góðra vina hópi. 

Líkt og öll ár eru veglegir vinningar í boði Forever!

 

1 sæti án forgjafar     Vörur og gjafabréf að verðmæti 60.000

 

1 sæti með forgjöf       Vörur og gjafabréf að verðmæti 60.000

2 sæti með forgjöf       Vörur og gjafabréf að verðmæti 45.000

3 sæti með forgjöf       Vörur og gjafabréf að verðmæti 40.000

4 sæti með forgjöf       Vörur og gjafabréf að verðmæti 35.000

5 sæti með forgjöf       Gjafabréf frá Dale Carnegi að verðmæti 30.000

6 sæti með forgjöf       Gjafabréf frá Dale Carnegi að verðmæti 30.000

 

Næst holu á öllum par 3 brautum

Lengsta drive á 6 braut

Teiggjöf og dregið úr skorkortum 

Ekki er hægt að vinna bæði með og án forgjafar