Októbertilboð á kortum í golfherma GA

Þann 1. október, hefjast vetratilboð á kortum í golfherma GA fyrir veturinn.

Tilboðið verður með besta móti en munum við bjóða upp á 30% afslátt af kortum í október mánuði. Þannig geta þrír kylfingar verslað sér saman 50 tíma kort á 579kr klst. á mann. 50 klukkustundir tryggja tvo tíma í viku frá 1. nóvember - 17. apríl! Tilboðið er út októbermánuð og munum við svo opna Golfhöllina þann 1. nóvember.

Við hvetjum GA félaga til að versla sér kort í október fyrir veturinn og nýta sér þessa úrvalsaðstöðu sem við bjóðum félagsmönnum upp á. Inniaðstaða GA í Golfhöllinni er með besta móti og verður tekið vel á móti ykkur í vetur í kjallara Íþróttahallarinnar. 

Afgreiðsla GA er opin 8-16 í október - frekari upplýsingar og fyrirspurnir afgreiðast á jonheidar@gagolf.is