Nýr framkvæmdastjóri tekur til starfa

Þann 1. nóvember tók Ágúst Jensson við starfi framkvæmdastjóra GA af Höllu Sif, sem hefur gegnt starfinu síðastliðin 7 ár.

Ágúst, sem áður var yfirvallarstjóri Golfklúbbs Reykjavíkur, er viðskiptafræðingur að mennt auk menntunar í golfvallarfræðum.  Í vetur verður Ágúst með skrifstofu í endurbættri aðstöðu í Golfhöllinni, en flytur sig að Jaðri þegar vorar. 

Við bjóðum Ágúst hjartanlega velkominn til starfa og væntum mikils af samstarfinu við hann.