Ný og endurbætt bókunarsíða fyrir golfhermana komin í loftið!
Við höfum nú tekið í notkun nýja og betrumbætta bókunarsíðu fyrir golfhermana okkar: golfhermar.gagolf.is.
Með nýja kerfinu verða töluverðar breytingar á bókunarferlinu fyrir bæði félagsmenn og gesti. Markmiðið er að einfalda afsláttarkjör félagsmanna, bæta yfirsýn yfir bókanir og gera viðskiptavinum kleift að fylgjast með bókunarsögu sinni, inneignum og öðrum upplýsingum á einum stað.
Eins og oft gerist þegar ný kerfi eru tekin í notkun má búast við að einhverjir hnökrar komi upp í byrjun og að bæði við og gestir okkar þurfum smá tíma til að aðlagast breytingunum. Við erum þó sannfærð um að nýja síðan muni reynast öllum notendum afar vel þegar fram líða stundir.
Til að bóka tíma þurfa allir viðskiptavinir að skrá sig inn á Mínar síður. Innskráning er möguleg með GolfBox-númeri, netfangi eða símanúmeri sem tengt er við GolfBox-aðgang. Þegar upplýsingar hafa verið skráðar inn berst staðfestingarkóði á netfang viðkomandi sem notaður er til innskráningar.
Félagsmenn Golfklúbbs Akureyrar fá sjálfkrafa sín afsláttarkjör þegar þeir eru skráðir inn á Mínar síður. Þar með geta þeir meðal annars bókað einn klukkutíma í golfhermi á aðeins 3.000 krónur fyrir klukkan 14:00 á virkum dögum.
Skref 1:
Fara á mínar síður 
Skref 2: Skrá inn golfbox númer (32-****) eða netfang/símanúmer tengt við golfbox aðganginn. Sé viðskiptavinur ekki með golfbox aðgang skráir hann inn netfangið sitt.
Skref 3: Þarna má sjá mynd af mínum síðum, þar er hægt að skoða réttindi sín, bókunarsögu og næstu bókanir. Sé félagsmaður okkar ekki með "GA - félagsmenn" undir aðild og réttindi má hafa samband við skrifstofa@gagolf.is 
Skref 4: Velja golfhermar og finna dagsetningu og tímalengd sem viðskiptavinur vill bóka. Gulmerkt á mynd velur viðskiptavinur hversu marga herma hann vill bóka og hversu lengi. Fyrir neðan birtast þá allir lausir tímar þann dag sem leitað er eftir. Þegar valinn hefur verið upphafstími koma allir hermar sem eru lausir þann tíma sem kúnninn óskar eftir. 
Skref 5: Þegar búið er að velja hvaða hermi viðskiptavinur vill bóka er mikilvægt að velja "nota innskráðan aðgang" og kemur þá afsláttarverðið inn fyrir GA félaga og getur viðskiptavinur þá í framhaldi notað inneign sem hann á. Sjá gulmerkt á mynd. 
Skref 6: Þá er komið að greiðslumöguleikum til að ganga frá bókuninni. Hægt er að nota persónubundna fjárhæð ef viðkomandi á svoleiðis - Allir viðskiptavinir okkar geta verslað sér inneign sem er sett inn á viðskiptavinin og geta þá notað hana til að borga hvert skipti fyrir sig. Einnig er hægt að slá inn gjafabréfakóða, þeir gjafabréfakóðar sem viðskiptavinir okkar voru að nota á gömlu síðunni eru enn virkir og er þá slegið þá inn undir "gjafabréfakóði" og smellt á "nota gjafabréf" og þá reiknast verðið niður. Ef ekki er til inneign eða gjafabréfakóða heldur fólk áfram í greiðslumöguleika og hefur 10 mínútur til að greiða með korti á netinu til að ljúka bókuninni.
Með nýju bókunarsíðunni geta félagsmenn einnig nýtt afsláttarkjör sín allan sólarhringinn án þess að þurfa að hafa samband við golfbúðina með símtali eða tölvupósti. Kerfið þekkir félagsaðildina sjálfkrafa og birtir rétt verð við bókun.
Starfsfólk okkar er tilbúið að aðstoða ykkur eftir fremsta megni á meðan fyrstu skrefin eru tekin í nýja kerfinu. Við erum sjálf enn að kynnast öllum möguleikum þess, en hlökkum mikið til að vinna með þessa nýju og öflugri bókunarsíðu í vetur.