Nokkur pláss laus í Volkswagen Open

Hið árlega Volkswagen open verður haldið um helgina og er enn pláss fyrir nokkra áhugassama kylfinga til viðbótar. Fyrirkomulag mótsins er betri bolti, og spilað verður með 7/8 forgjöf bæði á föstudag og laugardag, en rástímarnir haldast óbreyttir á milli daga. Við hvetjum alla kylfinga til að skrá sig í þetta skemmtilega mót áður en allir rástímar fyllast! Frábærir vinningar verða í boði og vonum við að veðrið haldi áfram að leika við okkur líkt og síðustu daga. 

 

Vinningaskrá: 

1. sæti 2x Gjafabréf frá Icelandair að verðmæti 100.000kr ásamt FJ lúffum og FJ húfu

2. sæti 2x Gjafabréf frá Icelandair að verðmæti 60.000kr ásamt FJ lúffum og FJ húfu

3. sæti 2x Gjafabréf frá Icelandair að verðmæti 50.000kr ásamt FJ lúffum og FJ húfu

4. sæti 2x Titleist stadry standpokar og FJ húfa

5. sæti 2x Titleist lightweight kerrupoki og FJ húfa

 

Nándarverðlaun og lengsta drive: 

Nándarverðlaun á 4. holu báða dagana: 10.000kr gjafabréf á Rub 23 ásamt Titleist belti

Nándarverðlaun á 11. holu báða dagana: 10.000kr gjafabréf á Strikið/Bryggjuna ásamt Titleist belti

Nándarverðlaun á 18. holu báða dagana: Farsími frá Vodafone ásamt Titleist belti

Lengsta drive á 15. holu báða dagana: 10.000kr gjafabréf á Greifann ásamt Titleist belti

 

Teiggjöf verður veitt í upphafi móts

 

Lokahóf, verðlaunaafhending og happdrætti verður í golfskálanum kl 21 á laugardeginum, húsið opnar kl 20